[ Kirkjunetið ]
[ Kirkjunetið | Átrúnaður | Kristur | Guðfræði | Trúarlíf | Veftré ]
[ Almennt | Um Kirkjunetið | Umsagnir | Uppfærslur | Leit | Styrktaraðilar ]
Kirkjunetið var upphaflega samstarfsverkefni presta í Þjóðkirkju Íslands sem eru áhugamenn um rafræna útgáfu. Netstjórar þess voru sóknarprestarnir, Hannes Björnsson, í Patreksfjarðarprestakalli og Valdimar Hreiðarsson í Staðarprestakalli á Suðureyri. Af öðrum sem mikið lögðu á sig er helst að nefna Olgeir Helgason sem vann mikið að rafsálmum og bræðurna sr. Braga og Þorstein Ingibergssyni sem lögðu fram mikinn fjölda kirkjumynda. Þá voru vestfirskir prestar drjúgir við að leggja fram prédikanir í Rafpostillu sem varð stærsta postilla landsins.
Kirkjunetið hefur ávallt leitast við að vera einfalt í sniðum. Myndir eru í lágmarki og við hönnun er þess gætt að það njóti sín einnig í upplausninni 640 x 480 púnktar. Þar með tryggir Kirkjunetið öruggt aðgengi allra notenda án tillits til vélbúnaðar og hraða tengingar. Kirkjunetið nýtist því jafnt notendum gamalla Macintosh og 8086 PC véla gegnum Unix net með "Lynx" eða öðrum (löngu úreltum) sambærilegum forritum, sem og notendum með flóknari og nýtískulegri tækjabúnaði. Ekki er þó mælt með notkun á einfaldari tæknibúnaði en 386 PC og Netscape 1.0 eða sambærilegu forriti með 640 x 480 púnkta upplausn. Kirkjunetið var frá upphafi hannað til að vera aðgengilegt fyrir fatlaða sem treysta á lesforrit.
Kirkjunetið tekur ekki ábyrgð á efni sem kann að finnast í geymslu þess. Sérhver höfundur efnis sem geymt er hjá Kirkjunetinu lýsir sínum eigin skoðunum. Ekki er sjálfgefið að höfundur fylgi viðhorfi Þjóðkirkjunnar í heild. Netstjórn áskilur sér rétt til að hafna efni og til að fjarlægja efni af Kirkjunetinu.
Netstjórn Kirkjunetsins styður höfundarrétt hvers einstaklings og hverrar stofnunar sem vistar efni hjá Kirkjunetinu. Hún hlítir ábendingum ef einhver telur sig vera höfund að tilteknu efni og er mótfallin birtingu þess. Netstjóri Kirkjunetsins lýsir yfir einkarétti á skipulagi, hönnun, útliti og uppsetningu Kirkjunetsins, sem og öllu rafrænu efni sem ekki er merkt öðrum höfundum. Netstjórn Kirkjunetsins leyfa takmarkaða notkun á efni Kirkjunetsins. Óheimilt er að efni Kirkjunetsins sé notað í ábataskyni af einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum eða félögum. Afritun er því aðeins heimil að þess sé getið hvaðan efnið er fengið.