[ Kirkjunetið ]
[ Kirkjunetið | Átrúnaður | Kristur | Guðfræði | Trúarlíf | Veftré ]
[ Almennt | Ritskýring | Kirkjusaga | Trúfræði | Heimspeki | Siðfræði | Kennimannleg ]
Guðfræði er fræðigrein sem fjallar um kenningar og upphaf kristindómsins. Til þess tekur guðfræðin ýmsar aðrar fræðigreinar í þjónustu sína svo sem ritskýringu, tungumálarannsóknir, fornleifafræði, kirkjusögu, trúfræði, heimspeki, félagsfræði, sálarfræði, hagfræði og nánast hvað eina sem kann að snerta málefnið. Guðfræðin er ekki takmark í sjálfu sér heldur leið að siðfræðilegu viðhorfi til hins síbreytilega heims. Sú hlið guðfræðinnar sem snýr að starfi presta er nefnd kennimannleg guðfræði.