Trúarbragðabók Kirkjunetsins
[ Kirkjunetið ]
[ Forsíða | Nýtrúarhreyfingar | Austrænt | Vestrænt | Dulrænt | Arabískt | Efnisyfirlit ]
Taka verður fram strax í upphafi að það er í raun og veru mjög erfitt að tala um þær hreyfingar sem hér verða gerðar að umfjöllunarefni, undir einum og sama hatti. Þó köllum við þær allar "nýjar trúarhreyfingar". En hvað eru nýjar trúarhreyfingar og hvað eru gamlar? Vandamálið er margþætt sem við stöndum andspænis, um leið og við ætlum að skilgreina hvaða hreyfingar eru nýjar trúarhreyfingar. Í fyrsta lagi eru þessar hreyfingar misgamlar. Sumar hafa orðið til á síðustu árum og áratugum, aðrar á síðustu öldum. Í öðru lagi vilja áhangendur sumra þessara hreyfinga ekki einu sinni láta kenna sig við trú. Kalla þeir hreyfingar sínar oft heimspekilegar, siðfræðilegar eða jafnvel vísindalegar í þeirri merkingu að þær séu að fást við vísindalega sannaleg fyrirbæri. Í þriðja lagi myndu nokkrar þessara hreyfinga ekki vilja kannast við að vera nýjar yfir höfuð. Þær rekja kenningar sínar og hugmyndir aftur til fornaldar, til eldri trúarhreyfinga eða einhverrar fornrar visku. Þó þær því hafi orðið til á þessari öld þá sé boðskapur þeirra eilífur, hafi alltaf verið til og verði alltaf til.
Hvað sem öðru líður og þrátt fyrir þessi vandamál, ætlum við að skoða og skilgreina þessar hreyfingar sem hafa sprottið upp á síðustu árum og öldum í þessum kafla, því þær eru sívaxandi hluti af hinu trúarlega litrófi. Hið nýja er einmitt það sem sameinar þær hvað svo sem þær kalla sig og kenna að öðru leiti. Þá er aðeins eftir að skilgreina hvað átt er við þegar þær eru kallaðar nýjar. Þá er einfaldlega átt við hvenær þær urðu til sem slíkar, hvenær byrjað var að boða þá trú eða kenningu sem þær byggja á. Þær hafa þannig allar orðið til á þessari eða síðustu öldum, hvort svo sem þær rekja kenningar sínar langt aftur í tímann eða ekki. Það er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir því að þær hreyfingar sem hér verða nefndar og skoðaðar eru aðeins örlítið brot af öllum þeim aragrúa nýrra trúarhreyfinga sem til eru út um allan heim. En þessi dæmi valdi ég vegna þess að þau gefa ágæta mynd af sínu "sviði", sínum væng hreyfinganna ef svo má að orði komast.