Ýmsar íslenskar bænir

 

 

Láttu nú ljósið þitt

Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt
hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús, mæti.

Ókunnur höfundur

 

Nú er ég klæddur og kominn á ról

Nú er ég klæddur og kominn á ról
Kristur Jesús veri mitt skjól.
Í guðsóttanum gef þú mér
að ganga í dag svo líki þér

Ókunnur höfundur

 

Vertu yfir og allt um kring

Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
sitji Guðs englar samna í hring
sænginni yfir minni.

Sigurður Jónsson frá Presthólum