Bæn Anselmusar frá Kantaraborg um kristilegt líf
Drottinn, gef oss náð til að þrá þig heilu hjarta, þrá þig svo, að vér leitum þig og finnum þig, og er vér höfum fundið þig, að vér elskum þig svo, að vér hötum syndirnar, sem skilja oss frá þér. Vér biðjum þig í nafni Jesú Krists. Amen.
Anselmus frá Kantaraborg
Guð, veit oss af miskunn þinni, að vér öðlumst eilíft líf, svo að vér sjáum dýrð þína eins og hún er og getum öll sagt: Dýrð sé föðurnum, sem skapaði oss, dýrð sé syninum, sem endurleysti oss, dýrð sé heilögum anda, sem helgaði oss. Amen.
Ágústínus kirkjufaðir frá Hippó
Bæn Ágústínusar um kristilegt líf
Drottinn, allt hefur þú liðið mín vegna, lát mig ætíð vera viðbúinn endurkomu þinni, svo að þú finnir mig, þar sem þú vilt, að mig sé að finna. Þín er dýrðin og ríkið ásamt föðurnum og heilögum anda að eilífu. Amen.
Ágústínus kirkjufaðir frá Hippó
Ég þakka þér, himneski faðir minn, fyrir Jesúm Krist, þinn elskulega son, að þú hefur náðarsamlega verndað mig á þessum degi. Og ég bið þig að fyrirgefa mér allar syndir mínar, þar sem ég hefi raglega breytt, og vernda mig náðarsamlega í nótt. Ég fel mig, líkama minn og sálu og sérhvað eina í hendur þínar. Heilagur engill þinn veri hjá mér svo að óvinurinn illi nái engu valdi yfir mér. Amen
Marteinn Lúther
Drottinn Guð minn, ég þakka þér fyrir þetta kvöld, ég þakka þér fyrir hvíldina, sem þú gefur líkama mínum og sálu minni. Hönd þín hefur verið yfir mér, verndað mig og varðveitt. Fyrirgef mér veikleika trúar minnar og allt, sem ég hef brotið af mér í dag og hjálpa mér að fyrirgefa þeim, sem hafa gjört mér rangt til. Lát mig sofa í friði í nótt umvafinn umhyggju þinni og varðveit mig frá freistingum myrkursins. Í þínar hendur fel ég allt, sem ég elska, alla í þessu húsi, sjálfan mig, bæði líkama og sálu. Ó, Guð, lof sé þínu heilaga nafni. Amen.
Dietrich Bonhoeffer
Bæn Dietrich Bonhoeffers um styrk í þrengingum
Drottinn, Guð, mikil raun hefur komið yfir mig, áhyggjur eru að yfirbuga mig, ég veit ekki, hvert ég á að snúa mér. Guð, ver mér náðugur og hjálpa mér. Gef mér styrk til að standast þá erfiðleika, sem þú leiðir mig í, og lát ekki óttann ná tökum á mér. Annast þá, sem mér eru kærir, eins og faðir annst börn sín. Miskunnsami faðir, fyrirgef mér allar mínar syndir gegn þér og gegn mönnunum. Ég treysti á náð þína og fel líf mitt í hendur þér. Gjör við mig, hvað sem þú vilt og það, sem er gott fyrir mig. Hvort sem ég lifi eða dey, þá er ég hjá þér og þú hjá mér, Guð minn. Drottinn, ég vænti komu ríkis þíns og frelsunar þinnar. Amen.
Dietrich Bonhoeffer
Almáttugi Guð, þú gefur oss náð til að vera með einum huga stöðugir í bæninni til þín og hefur heitið oss, að hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir í þínu nafni munir þú veita þeim bón þeirra. Drottinn, uppfyll nú óskir og bænir þjóna þinna, á þann átt, sem þeim er fyrir bestu, og gef oss að þekkja sannleika þinn í þessum heimi og eilíft líf í öðrum heimi. Amen.
Chrysostomus
Bæn Franz frá Assisi um trú og traust
Almáttugi Guð, eilífi, réttláti og miskunnsami, hjálpa oss, aumum syndurum, að gjöra vilja þinn vegna þín og samkvæmt bestu vitund vorri, og að vilja það ætíð, sem þóknast þér, svo að vér hreinsumst hið innra, upplýsumst og verðum brennandi af eldi heilags anda og fetum í fótspor þíns elskaða sonar, Drottins vors, Jesú Krists. Amen
Franz frá Assisi
Æðruleysisbæn Reinholdts Niebuhr
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég breytt, og vit til að greina þar á milli.
Reinholdt Niebuhr
Bæn Sören Kirkegaards um trú og traust
Himneski faðir, lát eigi hugsunina um þig vakna í hjörtum vorum eins og hræddan fugl, sem flögrar burt í hræðslu sinni, heldur sem barn, sem vaknar af blundi með himneskt bros á vör. Amen.
Sören Kirkegaard
Bæn Thomasar a Kempis á undan guðræknisstund og ritningarlestri
Drottinn, lát eigi orð þitt dæma oss, þannig að vér heyrum það en förum eigi eftir því, þekkjum það en elskum það ekki, trúum því en hlýðum því ekki, ó, þú, Kristur, sem lifir og ríkir með Guði föður og heilögum anda um aldir alda. Amen.
Thomas a Kempis
Bæn Thomasar a Kempis um tilgang lífsins
Gef mér, Drottinn, að þekkja það sem mér ber að þekkja, elska það sem mér ber að elska, lofa það sem gleður þig mest, virða það sem er dýrmætt í þínum augum og hafa andstyggð á því, sem er þér andstætt. Amen.
Thomas a Kempis
Bæn Thomasar a Kempis um náunga vorn
Miskunnsami faðir, þú sem hefur gefið öllum mönnum sama blóð í æðar, hjálpa oss að bera kærleika til allra manna. Gef oss næmt hjarta, svo að vér finnum sárt til eymda og erfiðleika bræðra vorra og systra og minnumst þeirra í kærleika. Lát oss ekki eingöngu hlúa að vorum eigin högum, heldur einnig annarra. Gef oss hugarfar Jesú Krists, að vér elskum eins og systkin, séum samúðarrík og nærgætin og keppum að því af öllu hjarta að varðveita einingu andans í bandi friðarins. Ver með oss öllum, Guð náðar, miskunnar og friðar. Amen.
Thomas a Kempis
Bæn Ignatiusar Loyola um kristilegt líf
Kenn oss, góði Guð, að þjóna þér eins og oss ber að þjóna, að gefa án þess að hugsa um, hvað það kostar, og berjast góðu baráttunni án þess að líta á sárin, að erfiða án þess að leita hvíldar, að vinna án þess að biðja um önnur laun en þau að vita, að vér höfum gjört vilja þinn. Fyrir Jesúm Krist, Drottinn vorn. Amen.
Ignatius Loyola
Vek oss Drottinn Guð, svo að vér verðum reiðubúnir að taka á móti syni þínum með hreinum hjörtum, þegar hann kemur. Í hans blessaða nafni, sem með þér lifir og ríkir um aldir. Amen.
Marteinn Lúther
Miskunnsami, eilífi faðir, þú sem þyrmdir ekki þínum eigin syni, heldur framseldir hann fyrir oss alla, að hann skyldi bera syndir vorar á krossinum, gef að hjörtu vor hviki aldrei né bili í þessari trú. Fyrir Jesúm Krist, Drottinn vorn, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda um aldir alda. Amen.
Marteinn Lúther
Almáttugi Guð, með dauða sonar þíns hefur þú að engu gjört synd og dauða og með upprisu hans endurreist sakleysi vort og eilíft líf, svo að vér, endurleystir frá ríki djöfulsins megum lifa í þínu ríki. Hjálpa oss að trua þessu af öllu hjarta og vera stöðug í þeirri trú og lofa þig ætíð og þakka þér. Fyrir Drottinn vorn Jesúm Krist, sem með þér lifir og ríkir í einingu heilags anda, sannur Guð um aldir alda. Amen.
Marteinn Lúther
Kirkjugöngubæn eftir Martein Lúther
Eilífi Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, gef oss heilagan anda þinn, sem ritar hið boðaða orð í hjörtu vor, svo að vér heyrum það og trúum því, og gleðjumst yfir því og huggumst við það í eilífðinni. Gjör orð þitt dýrlegt í hjörtum vorum, gjör það svo bjart og hlýtt, að vér finnum gleði í því. Uppfyll fyrirheit þess með krafti þínum, sakir Drottins vors og sonar þíns, Jesú Krists. Amen.
Marteinn Lúther
Bæn Marteins Lúthers um styrk í þrengingum
Faðir, Guð allrar huggunar, veit oss fyrir orð þitt og heilagan anda þinn, stöðuga, glaða og þakkláta trú, sem vér getum auðveldlega sigrað með þessa raun og allar aðrar, og að lokum skilið, að það er satt, sem þinn elskaði sonur, Jesús Kristur, segir: Verið hughraust, ég hef sigrað heiminn. Amen.
Marteinn Lúther
Bæn Brooke Foss Westcott fyrir frændfólki og vinum
Almáttugi, eilífi Guð, þú sem tengir menn saman blóðböndum og vináttuböndum. Blessa þú vini vora og frændfólk með margvíslegum náðargjöfum þínum, svo að vér vinnum saman í trú og kærleika að uppbyggingu ríkis þíns, samkvæmt heilögum vilja þínum, fyrir Drottinn vorn Jesúm Krist. Amen.
Brooke Foss Westcott