Sjómannabæn

Ó, góði guð, ég bið þig
að vernda alla á sjó.
Guðs englar hlustið nú á mig,
svo öðlist ég frið og ró.

Í stormi sem og logni
vertu þeim öllum hjá.
Svo vært og vel þeir sofni
og verði ei fyrir vá.

Faðir barna minna,
en honum mikið ég ann,
er úti á sjó að finna.
Hugsaðu vel um hann.

Því bið ég þig að vaka
og vera honum hjá.
Svo eigi muni hann saka
og hann aftur ég fái að sjá.

H.S.O.