Bænavers Sr. Hallgríms Péturssonar

Sr. Hallgrímur Pétursson er þekktasta trúarskáld Íslendinga. Hér eru nokkur bænavers hans.

 

 

Í náðarnafni þínu
nú vil ég klæðast, Jesús.
Vík ég að verki mínu
vertu hjá mér, Jesús.
Hjarta, hug og sinni
hef ég til þín, Jesús.
Svali sálu minni
sæta nafnið Jesús
ég svo yfirvinni
alla mæðu, Jesús,
bæði úti og inni
umfaðmi mig Jesús.

Í náðarnafni þínu
nú vil ég sofna, Jesús.
Bið ég í brjósti mínu
blessaður hvíli Jesús.
Sveipi svo í klæðum
síns réttlætis Jesús,
að á himnahæðum
hjá þér lendi, Jesús.
Mér í mótgangsmæðum
miskunna, góði Jesús.
Dreyra úr dýrstum æðum
dreif þú á mig, Jesús.

 

Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.

 

Vaktu minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætið í þinni hlíf.

 

Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni.
Hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.