Lestrar úr Davíðssálmum

 

Morgunlestur úr Davíðssálmum

Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor,
svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.
Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.
Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni.
Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa.
Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss.
Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.
Sálm. 67
 

Kvöldlestur úr Davíðssálmum

Veit mér þína dásamlegu náð, þú sem hjálpar þeim er leita hælis við þína hægri hönd fyrir ofsækjendum...... Varðveit mig sem sjáaldur augans, fel mig í skugga vængja þinna. - Sálm 17:7-8

Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast? - Sálm. 27:1

 

Kvöldlestur úr Davíðssálmum

Ég hef augu mín til fjallanna: Hvaðan kemur mér hjálp?
Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.
Hann mun eigi láta fót þinn skriðna, vörður þinn blundar ekki.
Nei, hann blundar ekki og sefur ekki, hann, vörður Ísraels.
Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar.
Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein, né heldur tunglið um nætur.
Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína.
Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu.
Sálm. 121