(1Pét. 3.8-15a)
Að morgni dags, hver dagur nýr
í Drottins ljósi að oss snýr
og fyrirheit og fögnuð ber.
Guð, faðir ljóssins, leið þú oss
og líf við Drottins náðarkross
af friði gef í faðmi þér.
(Ef. 3.13-21)
Að morgni dags þitt daggarljós
lát drjúpa' á vora trúarrós
svo andans skrúði verði skírð.
Vér biðjum, Guð, er stundlegt strá
í stormi fellur jörðu á
að lifi rós í ljóssins dýrð.
(Fil. 2.1-11)
Vér beygjum kné í bæn til þín
við birtu ljóss sem fagurt skín
að morgni dags og þökkum þér,-
já, þér sem gefur líf og ljós
og lífgar vora trúarrós;
þú Drottinn ert, þig dýrkum vér.
(Heb. 13.8)
Hinn sami Guð í dag og gær,
einn Guð í þrenning dýrðarskær
er allt í föðurhendi á.
Guð, send oss þínum syni í
þá sönnu trú sem birtist ný
í anda björt og býr oss hjá.
(Heb. 13.1-)
Ó, Drottinn, veit oss trú og tryggð,
það traust er styrkir vinabönd
og efl vorn kærleik, dáð og dyggð
þann dag sem bjartur fer í hönd.
(Heb. 10.19-24)
Ó, Drottinn, ver oss vörn um nætur
og vígðu oss þinn náðarhag,
svo hvert að öðru gefum gætur
af gæsku' og trú í allan dag.
(Fil. 4.4-9)
Af náð og blessun barnahjörð
gegn böli´og kvíða ætíð ver.
Með bæn og beiðni' og þakkargjörð
nú bljúg við, Drottinn, lútum þér.
(Ef. 4.25-26, 29-32)
Lát, Drottinn, þína náðarsól ei setjast,
en sindra björtum geislum kærleikans,
svo við af illu látum aldrei glepjast
en iðkum stöðugt dyggðir sannleikans.
(Gal. 6.1-7)
Ó, Drottinn, gef í hjartans gróðurlaut
eitt gullið fræ er trúarávöxt ber,
sem miðlum við til þeirra' er líða þraut
og þrá að eignast skjól í faðmi þér.
(1Jóh. 4.11-18)
Ó, kærleikans faðir, í Kristi nú hér
enn kærleika veit oss þinn hlýja og bjarta,
svo reynumst vér stöðug og staðföst í þér,-
þá stöðugur ert þú í sérhverju hjarta.
(1Tím. 6.6-12)
Í þínum syni eigum allt vort líf,
ó, almáttugi, kærleiksríki faðir.
Af náð og elsku veit oss vonarhlíf
og ver oss hjá um tímans aldaraðir.
(2Kor. 6.1-10)
Guð, hjálpa mér á hjálpræðisdagi,
á hagkvæmri tíð nú bænheyr þú mig
og leið í dag svo lifa ég megi
í ljósinu bjarta' og trúa á þig.
(Job.5.8-11)
Ég bið þig, ó Drottinn, um dásemdarverk
í dögun er vakna ég þér,
svo muni þau stórfengleg, náðug og sterk
mig styðja í lífinu hér.
(S. 25.8-14)
Af visku og trúfesti vísa mér leið
er vongóður, Drottinn, ég bið
að dagleiðin verði á göngunni greið
og gefi mér réttlæti' og frið.
(1Tím. 6.17-19)
Nú veit mér, ó Drottinn, þinn dýrasta sjóð,-
hinn dýrmæta kærleikans auð,
þá trú sem að gerir öll verkin mín góð
og gefur hið daglega brauð.
(Orðskv. 4.18-23)
Æ, vek mig, Guð, í ljóssins árdagsljóma
er lýsir dagsins vonarríku mynd
og lát þitt orð í hjarta mínu hljóma
við hreina' og tæra náðarinnar lind.
(S. 56.2a,4-5,9-14)
Af trú ég legg mitt líf á nýjum degi
í lausnarhendur þínar, Drottinn minn,
því þér ég treysta vil og óttast eigi
er orðið þitt í hjarta mér ég finn.
(Ef. 2.4-10)
Hæsti faðir höfuðsmiður,
hönd þín er svo góð og blíð
þeim er til þín bljúgur biður
bænar snemma' um morguntíð:
Veit mér ávallt elsku þína
alla lífsins daga mína,
svo ég vilji verkin mín
vinna' af ást og trúarsýn.
(2Tím. 2.15,19,22b-25a)
Ég vil vera verkamaður
vígðri Drottins jörðu á,
hógvær og í hjarta glaður
herfa mold og fræjum sá.
Drottinn, gef mér verk að vinna,
veita meðal barna þinna
orðsins sáði' í sérhvert hjarta
svo þar dafni trúin bjarta.
(1Þess. 5.16-24)
Hæsti faðir friðargjafi
fyrirheit þitt heimi ber
sannan fögnuð svo ég hafi
sæla trú í hjarta mér.
Blessa mig í blíðu þinni,
birtu gef þú sálu minni
svo ég glaður gjarnan megi
gleðja aðra' á þessum degi.
(S. 91.1-4,9,11-12)
Bljúg er, Drottinn, bæn frá mér:
Ber þú mig á höndum þér
svo ég steyti ei við steini
stríðan fót í syndameini.
Vertu hæli mitt og hlíf,
háborg mín og eilíft líf.
(Heb. 4.12-13)
Öflugt, Guð, er orðið þitt
er það snertir hjarta mitt,
fer í fylgsni sálar minnar
fyrir sakir náðar þinnar.
Gef að allt mitt heimsins hjóm
hljóti orðsins milda dóm.
(S. 25.4-7)
Um vegu þína vilt þú leiða mig
og vernda, Guð, í náð og gæsku þinni
því daginn allan vona ég á þig,-
að elsku þinnar launa til ég vinni.