fyrir syrgjendum, sem misstu ástvini sína voveiflega
Send þeim, Drottinn, þrek að þreyja' og stríða.
Þú einn veist hve mjög þau verða' að líða.
Heyr, þau kalla: Hjartans faðir minn,
huggun veit mér, gef mér friðinn þinnSéra Böðvar Bjarnason
deyjandi gamalmennis
Heim til þín, Jesú, af hjarta ég þrái,
hrakinn af böli og kvalinn af synd.
Kallið lát hljóma' þitt, fljótt svo ég fái,
Frelsarinn blíði, að sjá þína mynd.Hér ligg ég einmana, andláts að bíða,
aflvana, sárþreyttur heimsins af klið.-
Tak mig í faðminn þinn, Lausnari lýða.
Lát þú mig öðlast þinn himneska frið.Séra Böðvar Bjarnason
Bráðum veð ég æviárin.
Óðum finn ég krafta dvína.
Gegnum höfug hvarmatárin
heilagt ljósið sé ég skína.Brostu til mín, móðir mæta. -
Mér er heilög gleði þetta. -
Sorgin má ei geð þitt græta.
Guð er mínum krossi' að létta.Kom þú til mín, kæri faðir.
Kom og faðma "Barnið góða".
Vinir mínir, verið glaðir.
Við það léttist brjóstið móða.Komið hingað. Krjúpið niður.
Klökkva eyði Drottins máttur.
Yfir mig nú færist friður.
Fer að dvína hjartasláttur.Aldrei slíkan hef ég séðan
undraljoma' er mín bíður.
Frjáls og glaður fer ég héðan.
Flýgur með mig engill blíður.Ótal fagrar sé eg sýnir.
Syngur glaður engla skari. -
Verið sælir, vinir mínir. -
Við mér tekur lífsins hari.Séra Böðvar Bjarnason
Flýttu' þér dauði', eg fagna komu þinni.
Friðinn oeg þrái' af innstu hjarta rótum.
Torvelt var oft og mjög á vegferð minni. -
Mestur ert þú af öllum raunabótum.Bak við þig ljómar lífsins sól í heið.
Ljósið frá henni vermir hjartarætur.
Fúslega mót þér faðminn nú ég breiði.
Flyttu mig þangað sem að enginn grætur.Líknandi engill ertu' af Guði sendur.
Enginn því skyldi hræðast komu þína.
Föðurnum góða fel eg nú á hendur
fagnadni' og vonaglaða sálu mína.Séra Böðvar Bjarnason
Lyftu mér, Faðir minn, hærra og hærra.
Hjarta mitt vermdu með ylgeislum þínum.
Láttu það verða æ færra og færra,
sem freistar og glepur í verkahring mínum.Séra Böðvar Bjarnason
Lifandi algóði ljósanna faðir!
Læknaðu í brjósti mér holundarsár.
Boðarnir ógnandi æða svo hraðir,
ef þú ei styrkir mig búið er fár.Leið þú mig vandfarnar lífsins um brautir.
Ljáðu mér þrek til að starfa' eitthvað nýtt.
Líkna mér sekum og sefaðu þrautir,
sál mína vermdu við hjartað þitt blítt.Séra Böðvar Bjarnason
Góði faðir, hönd og hjarta
helga vil ég einum þér.
Gjör þú mína brautu bjarta.
Blessun þína veittu mér.Gef mér dug og þrek í þraut.
Þegar erfið verður braut.
Lát í öllu lífi mínu
ljóma geisla af orði þínu.Séra Böðvar Bjarnason
Drottinn, láttu ljósið þitt
lýsa mér um æviskeið.
Vermdu hjartað veika mitt.
Vermda mig í lífi' og deyð.Styrk minn anda' að þóknast þér,
þér svo aldrei víki' ég frá.
Bend á lífsins markið mér.
Mér lát auðnast því að ná.Séra Böðvar Bjarnason
Ó, faðir, gef mér góða nótt,
svo geti' ég sofið vært og rótt.
Þinn engill vaki yfir mér.
Af öllu hjarta eg treysti þér.Þú þekkir syndameinið mitt,
er mæðir seka barnið þitt.
Þú aleinn getur grætt mín sár.-
Þú getur þerrað öll mín tár.Ó, fyrirgef mér, faðir minn,
mér faðminn blíða opna þinn.
Eg þrái af hjarta þína náð.
Eg þrái' að bæta allt mitt ráð.Og gef eg þér ei falli frá
hér freistinganna brautum á,
en rati alltaf rétta braut
og reynist trúr í hverri þraut.Og gef að efla kærleik minn.
Og krft af hæðum send mér þinn,
svo alla menn eg elski hér,
og allt mitt líf sé helgað þér.Það fyllir unaði' anda minn,
að eg hér nálægð finn.
Þú ert að laða og leiða mig
og leyfir mér að elska þig.Gef þegar dauðans nálgast nótt,
í nafni þínu' eg sofni rótt. -
Ó, flyt þá andann frjálsa minn
í fagran dýrðarbústað þinn.Séra Böðvar Bjarnason
Heyr mig, faðir, bljúgt þig biður
barnið seka' um þína náð.
Þu, sem alla auma styður,
einum þér ég fel mitt ráð.
Láttu orð þitt lýsa mér.
Líf mitt vil eg helga þér.
Einn þú veist, hve oft eg hrasa,
andi minn, þótt hati synd.
Lát við mér á brautu blasa
blíða Jesú föðurmynd,
svo eg feti' í fótspor hans
fagrar brautir kærleikans.Þú veist að eg þrái heitast
þér að vígja hjarta mitt.
Lát þá náð mér veikum veitast.
Vernda' og styð mig, barnið þitt.
Gef eg alltaf þjóni þér.
Þína dýrð mér efla ber.Séra Böðvar Bjarnason
Ó, elsku faðir, andvörp heyr þú mín
og andann helga send að styrkja mig.
Æ, lyft mér hærra, hærra upp til þín,
svo hjartanlega beðið geti' eg þig.Ó, vernda mína vini, fjær og nær,
og vak þú yfir þeirra ævibraut.
Og inn í hjörtu þeirra friðinn fær.
En frá þeim bæg þú hverri sorg og þraut.Ó, leið þú alltaf elsku börnin mín,
og ástar vek þeim geisla' í sál.
Og gef þau verði einatt - einatt þín,
þótt ævibrautin kunni að verða hál.Æ, ég er fallni, seki sonurinn. -
Mín sekt er þung. - En sterk er náðin þín.
Ó, gef mér, elsku Faðir, friðinn þinn,
svo fái gróið djúpu sárin mín.Ó, Faðir minn, eg fel þér allt mitt ráð.
Ef finn að án þín verður lífið kvöl.
Eg þrái' af hjarta þína ást og náð.
Í þínum faðmi dvínar allt mitt böl.Séra Böðvar Bjarnason
Heyr, blíði Faðir, bænarandvörp mín
og blessa mig.
Eg mæni trúaraugum upp til þín.-
Eg elska þig.-
Þú ert mitt hæli, skjós og skjöldur hér.
Í skjóli þínu lífið dýrlegt er.
Ó, vertu hjá mér.- Dagur óðum dvín
og dimma fer.-
Í gegnum myrkrin ljómi ljósin þín
og lýsi mér.
Eg þrái heitt af hjarta faðminn þinn.
Í þínar hendur fel ég anda minn.Og vini mína vernda þú og styð,
og ver þeim hjá.
Gef þeirra særðu hjörtum helgan frið,
og hugga þá.
Þeim lýsi alltaf lífsins orðið blítt,
svo lífið verði fagurt, bjart og hlýtt.Séra Böðvar Bjarnason
Ó, Guð, ó, Guð, ég þakka þér,
að þína náð þú veittir mér.
Þú græðir hjartans sollin sár.
Þú sefar harm og þerrar tár.Þín náðin blessuð er mér allt.
Og er hér verður dimmt og kalt,
þá hlýnar alltaf hugur minn,
er hugsa eg um kærleik þinn.Þú leiðir mig um lífsins veg.
Þú leitar mín ef villist ég.
Þú opnar föðurfaðminn þinn,
er flý eg til þín, Drottinn minn.Þú endurnærir anda minn.
Eg innst í hjarta svölun finn.
Og lífið verður bjart og blítt,
ég barn þitt þrái' að verða nýtt.Mín augu mæna upp til þín,
og anda mínum ljómi skín.-
Ó, láttu blessað ljósið þitt
mér lýsa' og verma hjartað mitt.Og gef mér kraft að þjóna þér,
og þína dýrð að efla hér.-
Mér veitir frið þín föðurnáð.-
Eg fel þér, Drottinn, allt mitt ráð.Séra Böðvar Bjarnason
Heyr oss, Drottinn, heitt þig biðjum vér.
Hjörtum vorum sendu nú þinn anda.
Lífsins herra, lof og dýrð sé þér.
Lát oss ekki dauðann megna' að granda.Hjartað finnur svella meinin sín.
Sárt það þráir líknarorðin þín.
Ljóssins faðir, ljós þitt bjart oss skín.
Leið oss þangað, sem það aldrei dvín.Séra Böðvar Bjarnason